Þetta var nú aldeilis skemmtileg útilega í Hallormstaðarskóg eins og við var búast með þessum mannskap :)
Föstudagurinn 15 júní var sá lensti sem sögur fara af því vinnudagurinn ætlaði engan enda að taka , því eftirvæntingin að komast í fyrstu útlegu sumarsinns var áætluð 10 mínútum eftir að honum lyki en vitið menn eftir langan vinnudag sem var nú bara til kl.3 þá brunuðum við af stað á Egilstaði með bros á vör og þar voru þræddar allar búðir sem hugsanlega fengjust útilegukatlar því það átti að leggja þessum gamla enda hann orðin 25 ára en vitið menn bíllinn var orðin hálf fullur af allskonar drasli öðru en katlinum sem átti bara að kaupa en var auðvitað ekki til.
Við brunuðum þá á áfangastað og rétt á hæla okkur komu Hulda og Addi svo Benni og Matta , svo ráku lestina seint og um síðir :) Nonni og Lauga, þá vorum við hin búin að koma okkur fyrir en ákváðum að bíða eftir þeim og grilla svo öll saman, okkur leiddist ekki biðin sátum í sól og fínu veðri og skáluðum bara í bjór fyrir fyrstu útilegunni 2007 á meðan við biðum.
Þegar þau komu þá hentust karlarnir upp og snöruðu fellihýsinu þeirra upp á met tíma og grilluðu svo ofan í frúrnar á svæðinu "þessar elskur" og margt var skrafað og vitleysast og mikið hlegið fram að miðnætti en þá skriðu allir inn í heit rúmin sín og vöknuðu svo hressir fyrir 8 morguninn eftir í morgunkaffi hjá Hafsteini sem var auðvitað fyristur á lappir eins og venjulega og búin að hella uppá .
Laugardagurinn var yndislegur sól og hiti en smá gola, við slöppuðum af í sólinni en drifum okkur svo í góðan labbitúr en samt fleiri því Haukur og Hanna komu með sinn vagn um morguninn til að ver með okkur restina af helginni .
Á sunnudag fórum við svo uppá Kárahnjúka til að sjá lónið því öll komum við í fyrrasumar áður en byrjað var að hleypa í lónið. En ég segi það enn og aftur ég skil ekki allt þetta röfl um verndun þessa svæðis því ekkert merkileg hef ég séð þarna uppfrá sem ekki má fara undir vatn, en hvað veit ég ?
Eftir fjallaferðina fórum við í þjóðhátíðarkaffi á Skriðuklaustri nammi nammi fullt af kræsingum sem voru gerð góð skil áður en haldið var aftur á tjaldstæðið til að taka saman fyrir heimferðina.
Þetta var frábær helgi og eiga þær eftir að verða margar fleiri í sumar.
Um síðust helgi vorum við heima í góðu veðri og málum þakið á húsinu ennnnnnn nú um næstu helgi þ.e.a.s. 29/6-1/7 verður farið í aðra ferð og er ekki búið að ákveða hvert skal fara en það kemur í ljós fljólega allavegana ætlum við að fara þar sem gott veður verður, ég segi ykkur frá því síðar .
Tuesday, June 26, 2007
Wednesday, June 13, 2007
Jæja þá :)
Góðan daginn þá byrjar það aftur þ.e.a.s. að blogga, það var svosem ekki ætlunin en ég var eitthvað að fikta inná picasa myndaforritinu og lenti bara svona fyrir tilviljun inná þessu bloggveseni og auðvitað varð ég að prófa hvernig þetta virkaði hjá blogspot.com og er alveg óvíst að ég komist nokkurntíman inná þetta aftur :) en það verður bara að koma í ljós aðalega var ég að spá í svona mynda blogg þar sem ættingjar og vinir geta fylgst með því sem við erum að brasa því það er nú ýmislegt sem við tökum okkur fyrir hendur eins og allir vita.
Jæja ég ætla að halda áfram að fikta og gá hvað skeður.
kv.
Anna.
Jæja ég ætla að halda áfram að fikta og gá hvað skeður.
kv.
Anna.
Subscribe to:
Posts (Atom)
